HomeFréttirÖrvar : Hann þarf að sýna mikið meira

Örvar : Hann þarf að sýna mikið meira

 

Örvar Þór Kristjánsson, þjálfari ÍR, vildi ekki meina að þetta hafi verið þeirra slakasti leikur í vetur en þó hafi sóknarleikur liðsins líklega ekki verið verri hingað til.  Liðið bauð uppá 28% nýtingu í leiknum og rétt rúmlega 50% vítanýtingu en ólíklegt verður að teljast að nokkuð lið hafi unnið körfuboltaleik með álíka nýtingu.  

 

“Við erum búnir að eiga nokkra uppá síðkastið, en sóknarlega var þetta okkar lélegasti leikur, sem er glatað vegna þess að það voru bætingar í varnarleiknum þó við höfum fengið á okkur 90 stig þá vorum við að bæta varnarleikinn á hálfum velli mikið.  En þegar við hittum svona rosalega illa þá fengu þeir fullt af hraðaupphlaupum og það var það sem við áttum rosalega erfitt með að verjast í dag.  

Það er bara hræðilegt, það er bara skortur á einbeitingu.  Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta varnarleikinn en menn hafa bara gleymt að stilla miðið fyrir leikinn.”

 

ÍR-ingar bjóða uppá unga og efnilega drengi sem hafa tekið af skarið fyrir liðið í sókninni hingað til á tímabilinu og því spyrja menn sig hvort reynsluleysi geti spilað inní þegar sóknarleikurinn hrynur eins og sýndi sig í kvöld.

“Það getur alveg haft áhrif, þeir eru reyndar langt flestir að standa sig fínt.  Það eru reyndari leikmennirnir sem eru að hitta illa og kaninn hjá mér er náttúrulega bara ekki með”.  

 

Örvar vildi ekki meina að hann væri farinn að sjá eftir því að hafa skipt um erlendan leikmann en Calvin Henry hefur spilað þrjá leiki með liðinu, skorað 16 stig og tekið 7 fráköst og varið 3 skot að meðaltali á leik

“Nei nei, þetta gengur út á að taka ákvarðanir og þú verður að taka þær.  Hann þarf að sýna mikið mikið meira heldur en hann sýndi núna.  Við verðum bara að vinna í því að koma honum í stand, hann getur helling en var rosalega daufur í kvöld”.  

 

[email protected] 

mynd úr safni 

Fréttir
- Auglýsing -