HomeFréttirÖrvar: Alltaf þörf fyrir varnarsinnaðan skorara

Örvar: Alltaf þörf fyrir varnarsinnaðan skorara

Fjölnismenn lentu í dag í talsverðu basli með UMFN-b í 16-liða úrslitum Powerade bikarkeppninnar en höfðu að lokum sigur 80-72 en leikmenn UMFN-b gerðu þeim lífið leitt. Gamlar kempur eins og Páll Kristinsson og Brenton Birmingham sýndu sparihliðarnar og fór um marga Fjölnismenn í Dalhúsum í dag en að lokum stóðust Fjölnismenn prófið og sigldu áfram í 8-liða úrslitin. Við heyrðum í þjálfara Fjölnismanna og fyrrum leikmanni UMFN-b Örvari Kristjánssyni eftir leikinn.
Þetta var ansi tæpt Örvar, eiga Fjölnismenn ekki að „rúlla yfir„ B-lið UMFN á eðlilegum degi?
Við eigum amk að vinna en að „rúlla yfir“ tel ég þó ekki alveg rétt. Þessir leikmenn UMFN-b búa yfir gríðarlegri reynslu, keppnisskapi og gæðum enda sýndu þeir frábær tilþrif hérna í dag. Við gerðum okkur þetta erfitt fyrir og fórum í göngubolta með þeim en náðum þessu að lokum sem er aðal atriðið, komnir í 8-liða úrslitin. Ég viðurkenni þó fúslega að það fór um mig á löngum köflum leiksins enda þekki ég þessa mótherja afar vel og vissi að þeir myndu gera allt til þess að ná sigri.
 
 
Kitlaði þig ekkert í puttana að spila með UMFN-b gegn þínum piltum?
Í rauninni ekki, það var meira í gamni sagt í aðdraganda leiksins og til þess að fá guggurnar í húsið. Það er reyndar alltaf gaman að spila með þessum frábæru leikmönnum en mitt starf er að þjálfa Fjölni og það er í forgangi. Ég kem inn í þetta UMFN b lið jafnvel á næsta ári, það er alltaf þörf fyrir varnarsinnaðan skorara.
 
 
Eitthvað sem kom á óvart hjá UMFN-b?
Já það var gaman að sjá Jóhannes Kristbjörnsson spila 45 ára gamlan! Hann skoraði ótrúlega fallega körfu í upphafi leiksins undir körfunni og sýndi og sannaði að hann hefur þetta allt saman ennþá. Frábær leikmaður sem getur kennt yngri leikmönnum sitt lítið af hvoru þegar kemur að fallegum hreyfingum í körfuboltanum. Einnig gerði Sævar Garðarsson mér lífið leitt, setti 5 þriggja stiga körfur úr 5 tilraunum en var að bulla í mér alla vikuna að hann hefði ekkert „touch“ lengur. Aukafingurinn hjálpar! Gæðin í leik Brentons, Palla Kristins og Sverris Þórs komu mér ekkert á óvart. Neita að trúa öðru en að einhver liðin í Express deildinni sendi einhver tilboð í þessa leikmenn.
 
 
Hvað með framhaldið?
Okkar Fjölnismanna bíða ærin verkefni. Við erum án Árna Ragnarssonar núna um tíma og það verður á brattann að sækja en okkur hlakkar til að halda áfram í þessari skemmtilegu baráttu og höfum mikla trú á liðinu. Það er stutt á milli topp og botnbaráttu og deildin afar skemmtileg í ár. Það er bara fjör framundan!   
Fréttir
- Auglýsing -