spot_img
HomeFréttirÖruggur sigur Þórsstúlkna í Dalhúsum

Öruggur sigur Þórsstúlkna í Dalhúsum

Kvennalið Þórs Akureyri gerði góða ferð í Dalhús í dag þar sem þær mættu Fjölni í 1. deild kvenna. Þór byrjaði betur og náði strax yfirhöndinni. Eftir slæman kafla um miðjan fyrri hálfleik af hálfu Fjölnis voru Þórsarar komnir með þægilegt 30 stiga forskot, 8-38. Þrátt fyrir að leikurinn hafi verið mun jafnari í seinni hálfleik, náði Fjölnir ekki að saxa á forskot Þórs sem landaði öruggum 34 stiga sigri, 45-79.  

Þórsarar voru að rúlla vel á öllum leikmönnum sínum í dag, stigahæstar hjá þeim voru Thelma Hrund Tryggvadóttir með 19 stig/5 fráköst og Bríet Lilja Sigurðardóttir með 12 stig/8 fráköst. Hjá Fjölni var Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir atkvæðamest með 13 stig/7 fráköst og Fanney Ragnarsdóttir með 8 stig/5 fráköst. 

Stigaskor Fjölnis: Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 13 stig/7 fráköst, Fanney Ragnarsdóttir 8 stig/5 fráköst, Dagbjört Helga Eiríksdóttir 6 stig, Elísa Birgisdóttir 5 stig, Sigrún Elísa Gylfadóttir 4 stig, Hanna María Ástvaldsdóttir 4 stig, Sigrún Anna Ragnarsdóttir 3 stig, Erna María Sveinsdóttir 2 stig/5 fráköst, Friðmey Rut Ingadóttir 0 stig, Margét Eiríksdóttir 0 stig. 

Stigaskor Þór Ak.: Thelma Hrund Tryggvadóttir 19 stig/5 fráköst, Bríet Lilja Sigurðardóttir 12 stig/8 fráköst, Helga Rut Hallgrímsdóttir 11 stig/9 fráköst, Sædís Gunnarsdóttir 8 stig, Heiða Hlín Björnsdóttir 7 stig/9 fráköst, Fanney Lind G. Thomas 7 stig/5 fráköst, Rut Herner Konráðsdóttir 6 stig, Gréta Rún Árnadóttir 4 stig, Erna Rún Magnúsdóttir 3 stig, Kristín Halla Eiríksdóttir 2 stig, Giulia Bertolazzi 0 stig, Jóhanna Rún Styrmisdóttir 0 stig. 

Tölfræði leiks

Myndasafn (Bára Dröfn)

Mynd: Thelma Hrund Tryggvadóttir átti góðan leik í liði Þórs og skilaði 19 stigum og tók 5 fráköst (Bára Dröfn)

Fréttir
- Auglýsing -