spot_img
HomeFréttirÖruggur sigur Hauka á Þórsurum í Hafnarfirði

Öruggur sigur Hauka á Þórsurum í Hafnarfirði

 Haukar áttu ekki í miklu basli með Þór Ak. í kvöld þegar liðin mættust í Schenker-höllinni í kvöld. Haukar tóku öll völd í öðrum leikhluta og lögðu grunn að 19 stiga sigri sínum 103-84.
 
Leikurinn var nokkuð jafn til að byrja með og skiptust liðin á körfum meðan þau þreifuðu fyrir sér. Þórsarar virkuðu sprækari og vandræði Hauka í fráköstum endurspeglaði leik þeirra í frákastabaráttunni frá því gegn Hamri fyrir viku. Snemma lentu Þórsarar í villu vandræðum en allir stóru menn Þórs fyrir utan Darko Milosevic voru komnir snemma leiks með þrjár villur sem hafði áhrif á þeirra leik.
 
Emil Barja lék ekki með Haukaliðinu í kvöld en var þó í galla tilbúinn á hliðarlínunni en hann á við smávægileg meiðsli að stríða og kom það í hlut Andra Freyssonar og Steinars Aronssonar að stýra Haukaliðinu í fjarveru Emil.
 
Haukar tóku öll völd á vellinum í öðrum leikhluta þar sem Steinar Aronsson var aðal drifkrafturinn en með flottum leik hans fundu heimamenn taktinn og keyrðu upp muninn. Þórsarar sem virtust ætla að veita mikla mótspyrnu í fyrsta leikhluta gjörsamlega fóru í felur og sáust lítið í leikhlutanum. Haukar leiddu með 18 stigum í hálfleik, 57-39.
 
Seinni hálfleikur spilaði sig nokkuð sjálfur. Haukar héldu sínu og Þórsarar gerðu litlar atlögur að mun Hauka sem varð bara stærri og stærri. Haukar voru á endanum komnir með 27 stiga mun og ljóst að leikurinn var svo til búinn. Þórsarar tóku ekki við sér fyrr en í lok fjórða leikhluta og náðu að naga muninn aðeins niður en Haukar unnu að endingu 103-84.
 
Aaryon Williams var atkvæðamestur Hauka með trölla tvennu, 21 stig og 22 fráköst. Davíð Páll Hermannsson var með 21 stig og 6 fráköst og Haukur Óskarsson gerði 17 stig.
 
Hjá Þórsurum var Darco Milosevic með 21 stig og 7 fráköst og Ólafur Aron Ingvason var með 17 stig.

Mynd/ Steinar Aronsson var drifkraftur Hauka í leiknum í kvöld – [email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -