spot_img
HomeFréttirÖruggur sigur á heimamönnum

Öruggur sigur á heimamönnum

21:24

{mosimage}

Brenton Birgmingham var stigahæstur í kvöld. 

Íslenska karlalandsliðið hélt áfram sigurför sinni á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Gestgjafarnir í Mónakó voru fórnarlömb Íslendinga í dag, lokatölur leiksins 86-65.

Leikurinn í kvöld þróaðist eins og aðrir leikir Íslands á mótinu hingað til, nema ef vera kynni fyrstu mínútur leiksins. Eftir jafnræði fyrstu mínúturnar, þar sem Mónakó var með forystuna 8-10, tóku Íslendingar við sér, skoruðu 21 stig í röð og breyttu stöðunni í 29-10. Heimamenn náðu að minnka muninn fyrir lok fyrsta leikhluta í 29-17, en komust aldrei nær. Eins og áður sagði voru lokatölur 86-65, en sigurinn í kvöld þýðir að leikur Íslands og Kýpur á laugardag er þá úrslitaleikur mótsins.

Sigurður Ingimundarson þjálfari Íslands dreifði spilatímanum mjög vel í kvöld, sem og í hinum leikjunum.

Ísland-Mónakó 86-65 (29-17, 45-31, 65-52)
Brenton Birmingham 19 stig (2/2 í þriggja, 5/6 í tveggja, 3 stolnir), Páll Axel Vilbergsson 17 stig (5/8 í þriggja, 5 fráköst), Hreggviður Magnússon 12 stig, Helgi Már Magnússon 9 stig (4 fráköst), Logi Gunnarsson 9 stig, Brynjar Björnsson 8 stig, Hörður Axel Vilhjálmsson 5 stig (6 stolnir), Þorleifur Ólafsson 3 stig, Friðrik E. Stefánsson 2 stig (9 fráköst) og Jóhann Árni Ólafsson 2 stig. Kristinn Jónasson (5 fráköst) og Magnús Gunnarsson (4 fráköst) náðu ekki að skora.

 

www.kki.is

 

Mynd: Jón Björn Ólafsson

 

Fréttir
- Auglýsing -