HomeFréttirÖruggur KR sigur á áhugalausum Hólmurum

Öruggur KR sigur á áhugalausum Hólmurum

KR-ingar bundu enda á tveggja leika taphrinu sína með öruggum 116-93 sigri á Snæfelli sem hafði á sunnudaginn tryggt sér deildarmeistaratitilinn og hafði því uppá litlu að keppa. Marcus Walker setti tóninn fyrir KR liðið strax í byrjun en hann virtist hreinlega á ljóshraða á köflum í leiknum gegn sofandi vörn gestanna. Marcus raðaði niður 10 stigum í fyrsta leikhlutanum en Snæfellingar héldu sér inní leiknum með þriggja stiga skotum. Ryan Amoroso sem hafði orðið fyrir hnjaski á æfingu í gær hóf leikinn fyrir Snæfellinga og var besti maður liðsins í fyrri hálfleiknum með 12 stig og 5 stoðsendingar en hjá KR liðinu voru Marcus með 15 stig og Pavel 11. Munaði um að Jón Ólafur var kominn með 3 villur snemma í fyrri hálfleiknum en KR liðið sótt vel að körfu gestanna í kvöld. Staðan í hálfleik 51-47 fyrir heimamenn. 
Vesturbæingar mættu mun grimmari útúr hálfleiknum og var ljóst frá fyrstu mínútu hálfleiksins í hvað stefndi. Brynjar Þór sem hafði haft hljótt um sig í fyrri hálfleiknum var öflugur og skóp bæði stig fyrir sjálfan sig og Finn Atla sem átti gott kvöld á báðum endum vallarins. Hinum megin sat Amoroso á bekknum allan hálfleikinn og Ingi Þór að hvíla hann fyrir úrslitakeppnina.
 
KR liðið náði snemma góðri forystu og þrátt fyrir leikhlé virtust gestirnir ekki tilbúnir í átök. Fljótlega var munurinn kominn upp í 15 stig en staðan eftir leikhlutann 89-70. Leikmenn Snæfells voru að gera mikið af klaufalegum mistökum allan leikinn og var lýsandi fyrir leikinn þegar Sean Burton glutraði boltanum við litla pressu frá Marcus sem þakkaði pent fyrir sig og lagði boltann ofaní. Þeir Ágúst Angantýsson og Hreggviður Magnússon kláruðu svo leikinn endanlega fyrir KR liðið í upphafi fjórða leikhlutans en Ágúst átti sinn besta leik í vetur. Eftir tvo þrista í röð frá Hregga var staðan 108-80 og síðustu 5 mínúturnar formsatriði. Síðustu tvær körfur leiksins kveiktu svo vel í stuðningsmönnum KR liðsins, fyrst kom Ágúst með góða troðslu í traffík og svo reif gamli refurinn, Skarphéðinn Ingason, sig til flugs og tróð í hraðupphlaupi öllum til mikillar undrunar. Lokatölur 116-93 og 2. sætið í höfn hjá heimamönnum.
 
Hjá KR liðinu bar Marcus Walker af með 27 stig en fimm aðrir leikmenn náðu að skora yfir 10 stig. Finnur Atli var traustur undir körfunni og nýtti sín færi vel, Pavel átti fína spretti og þeir Hreggviður og Ágúst áttu báðir glimrandi innkomu. Ryan Amoroso var besti maður Snæfells í leiknum meðan hans naut við, Jón Ólafur komst lítið í takt við leikinn eftir villu vandræði en lauk leik þór með 14 stig. Pálmi Freyr gerði hvað hann gat og var einn af fáum leikmönnum gestanna sem börðust allan leikinn.
 
 
Snæfell endar því í fyrsta sæti einsog var á hreinu fyrir leik kvöldsins og mætir Haukum í fyrstu umferðinni. Eftir sigur Keflvíkinga á Grindvíkingum í kvöld er það ljóst að það stefnir í klassíska baráttu fjendanna KR og Njarðvíkur í 8-liða úrslitum en aðrar viðureignir eru Keflavík-ÍR og Grindavík-Stjarnan
 
 
Heildarskor:
 
KR: Marcus Walker 27, Finnur Atli Magnússon 18/7 fráköst, Pavel Ermolinskij 15/5 fráköst, Ágúst Angantýsson 14, Hreggviður Magnússon 13, Brynjar Þór Björnsson 11/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ólafur Már Ægisson 8, Skarphéðinn Freyr Ingason 5/6 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 5/4 fráköst, Martin Hermannsson 0, Páll Fannar Helgason 0.
 
Snæfell: Pálmi Freyr Sigurgeirsson 15/5 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 14/6 fráköst, Sean Burton 13/4 fráköst, Zeljko Bojovic 12, Ryan Amaroso 12/5 stoðsendingar, Emil Þór Jóhannsson 11, Atli Rafn Hreinsson 7, Sveinn Arnar Davíðsson 4/4 fráköst, Egill Egilsson 3, Daníel A. Kazmi 2, Steinar Þór Guðjónsson 0, Hlynur Hreinsson 0.
 
Umfjöllun: FS
Fréttir
- Auglýsing -