spot_img
HomeFréttirOlson framlengir hjá FSu

Olson framlengir hjá FSu

Erik Olson hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við Körfuknattleiksfélag FSu og verður hann því aðalþjálfari liðsins til loka tímabilsins 2014. Á sama tíma skrifaði Bjarmi Skarphéðinsson undir ráðningarsamning sem framkvæmdarstjóri félagsins og verður hann því starfandi sem slíkur til loka sama keppnistímabils. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FSu.
 
Eftir að þeir Erik og Bjarmi skrifuðu undir var komið að leikmönnunum og Ari Gylfason og Svavar Ingi Stefánsson skrifuðu undir eins árs samning við félagið. Þeir félagar voru öflugir á nýliðnu tímabili og verða áfram í lykilhlutverkum á næsta tímabili. Það er því ljóst að FSu ætlar sér stóra hluti á komandi misserum og von er á frekari fréttum af félaginum á næstunni.
 
Mynd/ Frá vinstri: Ari Gylfason, Bjarmi Skarphéðinsson framkvæmdarstjóri, Víðir Óskarsson formaður, Erik Olson þjálfari og Svavar Ingi Stefánsson.
  
Fréttir
- Auglýsing -