14:48
{mosimage}
Laugardaginn 24. febrúar næstkomandi verður hið árvissa öldungamót Þórsara haldið í
Íþróttahöllinni á Akureyri. Allir leikir mótsins fara fram á einum stað og verða
tveir frambærilegir dómarar á hverjum leik. Þetta í bland við góða góðar móttökur og
góða félaga er uppskrift að frábæru körfuknattleiksmóti!
Boðið upp á kvennariðil sem og 30-40 ára karlariðil og riðil fyrir karla sem eru 40+
ef næg lið fást. Í kvennaliðunum mega konur vera frá 27 ára aldri, svo framarlega að
þær séu ekki leikmenn með liðum sem eru í Íslandsmóti.
Leiktími er 2 x 16 mínútur að lengd (klukka ekki stoppuð).
Í lok móts verða veittar viðurkenningar auk þess sem boðið verður upp á akureyskar
flatbökur/pítsur og gos. Rúsínan í pylsuendanum verður síðan "vísindaferð/-ir" fram
á nótt með öllu tilheyrandi.
Tekið er við skráningum í mótið í [email protected] og í eftirfarandi símum 694-4970
(Bjarni) og 892-3166 (Eiríkur). Skráningargjald er einungis 2500 krónur á mann.
Endilega skráið ykkur sem fyrst. Við hlökkum til að sjá sem flest á vellinum.
Nánari upplýsingar um mótið veitir Jóhann Rúnar Sigurðsson, [email protected]