HomeFréttirÓlafur sýndi Brown hvar Davíð keypti ölið: Brown fékk líka að vera...

Ólafur sýndi Brown hvar Davíð keypti ölið: Brown fékk líka að vera með

 
Brandon Brown, leikmaður Fjölnis, hefur komið með látum inn í Iceland Express deild karla og látið dýrslega þegar hann hefur sig til lofts og eftirminnileg er troðslan hans gegn Tindastól á dögunum. Í síðustu umferð var Brandon Brown hinsvegar boðinn velkominn til landsins þegar troðslukóngur okkar Íslendinga, Ólafur Ólafsson leikmaður Grindavíkur, skellti nýjasta leikmanni deildarinnar á ,,plakat.“
Brown fékk líka að láta til sín taka í leiknum og ljóst að menn þurfa að beina myndavélunum að þessum kappa þegar hann bregður undir sig betri fætinum.
 
 
Mynd/ Þorgils JónssonÓlafur hefur verið lengi í háloftafimleikum en þessi mynd var tekin árið 2007.
Fréttir
- Auglýsing -