spot_img
HomeFréttirOklahoma sendir Harden til Houston

Oklahoma sendir Harden til Houston

Oklahoma City Thunder hefur skipt besta sjötta manni deildarinnar frá síðasta tímabili, James Harden, til Houston Rockets en þetta gáfu liðin út í nótt.  Það hefur lengi legið fyrir að ef OKC og James Harden kæmust ekki að samkomulagi um framlengingu á samningi Harden myndi OKC þurfa að skipta honum frá sér til þess að eiga það ekki á hættu að hann færi fyrir ekki neitt næsta sumar þegar samningur hans rennur út.  

Houston Rockets fá ásamt Harden þá Daequan Cook, Cole Aldrich og Lazar Hayward.  Leikmenn sem eiga að öllum líkindum ekki eftir að hafa stór áhrif á spilamennsku Houston á næstu árum.  

 

Á móti fá OKC Kevin Martin, þekkta stærð sem hefur spilað stórt hlutverk í liði Houston síðustu ár og verið þeirra stigahæsti maður að jafnaði.  Með honum kemur nýliðinn Jeremy Lamb, tveir valréttir í fyrstu umferð og einn valréttur í seinni umferð.  

 

Núna verður spennandi að fylgjast með hvaða áhrif þetta hefur á lið Oklahoma sem margir hafa spáð góðu gengi á þessu tímabili.  Harden hefur þó spilað virkilega stórt hlutverk í liðinu og því stórt skarð sem Martin er ætlað að fylla.  

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -