spot_img
HomeFréttirOddaleikur framundan hjá Helga Má og félögum

Oddaleikur framundan hjá Helga Má og félögum

8:27

{mosimage}

BC Boncourt lið Helga Más Magnússonar þarf oddaleik til að skera úr um hvort að liðið komist í undanúrslitin í Sviss. Helgi Már skoraði 7 stig og tók 4 fráköst.

Það þarf oddaleik hjá BC Boncourt og BBC Monthey til að fá útúr því skorið hvort liðið kemst í undanúrslit gegn Fribourg sem hafa verið langbesta liðið í svissnesku deildinni í vetur.

Leikurinn fór 78-55 fyrir BBC Monthey en þeir leiddu í hálfleik 47-26.  Sveiflurnar í leikjunum eru gríðarlegar, Helgi og félagar sigruðu BBC Monthey auðveldlega á heimavelli á fimmtudaginn og svo steinliggja þeir á útivelli.

Fimmti og síðasti leikurinn fer fram á miðvikudag og þá kemur í ljós hvort liðið kemst áfram.

 

www.kr.is/karfa

 

Mynd: Roger Meier

Fréttir
- Auglýsing -