Mánaðarlega mun Karfan birta kraftröðun í vetur. Þar er ekki aðeins tekin til staða liðanna í deildinni, heldur einnig breytingar á leikmannahópum og það gengi, eða sú sveifla sem liðið er í á hverri stundu.
1. deild kvenna fékk ekki október röðun sína sökum of fárra leikja, en fær núna nóvember röðunina sem tekur til október mánuð líka. Það sem horft er til í þessari annarri útgáfu eru sigrar í deildinni (og gegn hvaða liðum), tölfræði liðanna og almennt hvernig liðið lítur út á vellinum.
Örvarnar á þessum lista merkja færslu liða á milli mánaða.
#1: KR


Vesturbæjarliðið hefur góðar og efnilegar ungar stelpur ásamt því að vera með nokkuð góðan erlendan leikmann í Desiree Ramos. Málið er að hún þarf ekki að spila allan tímann til að liðið standi sig. Hún spilar ekki 20 mínútur að meðaltali í leik og liðið hennar er ósigrað. KR-ingar eru að skora 20 stigum meira að meðaltali í leik en næstu tvö liðin. Nokkuð öruggar með fyrsta sætið í bili.
Breyting: Upp um eitt sæti
Næstu 5 leikir:
10. nóvember @ Þór Ak.
25. nóvember @ Hamar
29. nóvember gegn Ármann
03. desember @ Fjölnir
09. desember gegn ÍR
#2: Grindavík


Þrátt fyrir að hafa tapað tveimur leikjum úr sex og að vera í 3. sæti eru Grindavíkurstelpur á góðu róli. Þær eiga líka Angelu Rodriguez inni sem mun með Emblu Kristínardóttur kannski stríða KR. Grindavík hefur samt ekki ennþá staðið undir væntingum og gætu misst Emblu meira út vegna landsliðsverkefna. Eru þó með fleiri afgerandi leikmenn en Fjölnir.
Breyting: Niður um eitt sæti
Næstu 5 leikir:
12. nóvember gegn Hamar
18. nóvember gegn Ármann
26. nóvember @ Fjölnir
28. nóvember gegn ÍR
16. desember gegn KR
#3: Fjölnir

Fjölnir hóf tímabilið án McCalle Feller, rétt unnu ÍR-inga og töpuðu naumt fyrir Grindavík. Feller virðist vera mikill orkubolti og góð fyrir móralinn, en gæti verið meira afgerandi. Þær Grafarvogsstelpur eru þó í öðru sæti deildarinnar en eru samt ekki betri en KR og Grindavík. Kyrrar í bili í þriðja sætinu.
Breyting: Engin
Næstu 5 leikir:
18. nóvember @ ÍR
26. nóvember gegn Grindavík
03. desember gegn KR
09. desember @ Hamar
17. desember gegn Ármann
#4: ÍR


Breiðholtspíurnar sóttu sinn fyrsta sigur í Hveragerði fyrir skemmstu og eru núna búnar að spila við öll þrjú toppliðin. Fyrir utan 49 stiga tap gegn efsta sætinu, KR, þá hafa þær verið í öllum leikjum sínum og núna gæti leiðin legið upp á við. Þær eru í 6. sæti í deildinni, en munu rísa hægt og rólega þegar þær fara að spila við neðri liðin í deildinni.
Breyting: Engin
Næstu 5 leikir:
12. nóvember gegn Ármann
18. nóvember gegn Fjölnir
25. nóvember gegn Þór Ak.
28. nóvember @ Grindavík
09. desember @ KR
#5: Þór Akureyri


Lið Akureyrar er skipað mörgum ungum stúlkum ásamt nokkrum reynsluboltum og náðu m.a. að stela sigri í æsispennandi leik gegn Grindavík. Þær geta á góðum degi unnið topplið en á sama tíma aðeins unnið botnliðið með 17 stigum. Við þurfum að sjá fleiri leiki með þeim til að meta liðið betur, en þær eru betri en við bjuggumst við í fyrstu.
Breyting: Upp um tvö sæti
Næstu 5 leikir:
10. nóvember gegn KR
18. nóvember gegn Hamar
19. nóvember gegn Hamar
24. nóvember @ Ármann
25. nóvember @ ÍR
#6: Hamar

Hamar hefur tapað 4 leikjum og aðeins unnið Ármenninga. Þær töpuðu naumt gegn ÍR fyrir skemmstu þannig að það gæti vel verið að þær séu að spila undir getu. Við teljum það þó ólíklegt, þetta er sjötta besta lið 1. deildarinnar.
Breyting: Niður um eitt sæti
Næstu 5 leikir:
12. nóvember @ Grindavík
18. nóvember @ Þór Ak.
19. nóvember @ Þór Ak.
25. nóvember gegn KR
01. desember @ Árman
#7: Ármann


Karl Guðlaugsson þjálfari Ármanns sagði eftir 50 stiga tap gegn Fjölni að þetta tímabil eigi eftir að verða erfitt. Við erum sammála en fögnum því að fleiri kvennalið séu að taka slaginn. Þær ná vonandi að vinna leik á tímabilinu en verða neðstar í deildinni og í þessari kraftröðun.
Breyting: Niður um eitt sæti
Næstu 5 leikir:
12. nóvember @ ÍR
18. nóvember @ Grindavík
24. nóvember gegn Þór Ak.
29. nóvember @ KR
01. desember gegn Hamar




