HomeFréttirNjarðvíkingar enda mótið á góðum nótum

Njarðvíkingar enda mótið á góðum nótum

 Njarðvíkingar sem voru í bullandi fallbaráttu enduðu mótið á góðum nótum þegar þeir sigruðu Tindastól í kvöld með 96 stigum gegn 84. 
 Það var svo sem fátt um fína drætti í Njarðvíkinni í kvöld. Helsta umræðu efnið var að sjálfsögðu að Brenton Birmingham var mættur í búning fyrir Njarðvíkinga og kappinn hefur engu gleymt. Setti niður 14 stig á tæpum 13 mínútum og á vissulega eftir að reynast Njarðvíkingum vel í úrslitakeppninni. 
 
Tindastólsmenn þurfa hinsvegar að bíta í það súra epli að missa af úrslitakeppninni þrátt fyrir mjög góða spilamennsku á tímum í vetur.  Grátlegt verður að segjast því hópur þeirra var nokkuð fínn og hefðu svo sannarlega getað strítt hvaða liði sem er í úrslitakeppninni. 
 
Njarðvíkingar munu halda í vesturbæinn og mæta sterku liðið KR í fyrstu umferð úrslitakeppninar. Vissulega verðugt verkefni fyrir Njarðvíkinga en KR liðið lagði deildarmeistara Snæfels í kvöld. 
Fréttir
- Auglýsing -