spot_img
HomeSubway deildinSubway deild karlaNjarðvík og Haukar með sigur í æfingaleikjum

Njarðvík og Haukar með sigur í æfingaleikjum

Tveir æfingaleikir fóru fram í gær í mekka körfuknattleiks, Reykjanesbæ.  Njarðvíkingar tóku á móti liði Skallagríms og þegar yfir lauk sigruðu Njarðvíkingar 96:78 í fjörugum leik þar sem ýmis tilþrif sáust.

 

Hinumegin við lækinn tóku Keflvíkingar á móti Haukum og fóru Haukar með sigur í hörkuleik. Staðfestar tölur úr leiknum eru ekki komnar í hús en Haukar sigruðu með 2 stigum samkvæmt heimildum.

 

Deildin í ár hefst með tívolíbombu þegar risarnir úr Reykjanesbænum mætast í Ljónagryfjunni í fyrstu umferð mótsins.

Fréttir
- Auglýsing -