Haukar og Njarðvík mættust í sínum fyrsta leik í dag í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna en leikurinn fór fram að Ásvöllum. Jafnt var á með liðunum fyrstu þrjá leikhlutana en Njarðvíkingar sigu framúr á lokasprettinum og leiða því einvígið 0-1. Liðin mætast svo aftur í sínum öðrum leik næsta mánudag kl. 19:15 í Ljónagryfjunni þar sem Njarðvíkingar geta komist áfram en Haukar þurfa á sigri að halda til að jafna og fá oddaleik að Ásvöllum.
Staðan var jöfn 20-20 að loknum fyrsta leikhluta þó Njarðvíkingar hefðu verið fyrri til að láta að sér kveða og leiddu snemma 2-6. Íris Sverrisdóttir hélt Haukum við efnið á upphafsmínútunum og gerði 11 stig fyrir rauðar í fyrsta leikhluta og í liði gestanna var Shayla Fields með 12 stig en hún setti niður stóran þrist um leið og leiktíminn rann út í leikhlutanum.
Rétt eins og í fyrsta leikhluta voru Njarðvíkingar sprækari framan af, komust í 28-33 gegn 2-3 svæðisvörn Hauka en þá virtust heimakonur ranka við sér. Haukar splæstu í 9-0 áhlaup og komust í 37-33 þar sem Kathleen Snodgrass fór fyrir Hafnfirðingum. Eyrún Líf Sigurðardóttir náði að slökkva í árás Hauka er hún minnkaði muninn í 37-35 með gegnumbroti fyrir Njarðvíkinga en það voru Hafnfirðingar sem leiddu 39-35 í hálfleik.
Kathleen Snodgrass var með 16 stig í hálfleik hjá Haukum en Shayla Fields með 12 stig hjá Njarðvíkingum og náði ekki að gera stakt stig í öðrum leikhluta.
Njarðvíkingar bitu vel frá sér í upphafi síðari hálfleiks og létu það lítil áhrif á sig hafa að Ólöf Helga Pálsdóttir færi á bekkinn með sína fjórðu villu. Njarðvíkingar komust í 45-51 þar sem Julia Demirer var aðeins farin að taka við sér í grænum. Njarðvík náði muninum svo upp í 10 stig, 47-57 en Haukar klóruðu í bakkann og minnkuðu muninn í 55-62 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
Haukar opnuðu fjórða leikhluta 7-2 og náðu að minnka muninn í 62-64 og þá tók Sverrir Þór Sverrisson leikhlé fyrir grænar. Hvað sem hann sagði hefur dugað því Njarðvíkingar komu grimmir út úr leikhléinu og á fjórum mínútum breyttu þær stöðunni í 68-79. Eftir það var eftirleikurinn auðveldur jafnvel þó Julia Demirer færi með fimm villur af velli í liði Njarðvíkinga þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka. Lokastaða 71-84 Njarðvík í vil og annar leikur liðanna í Ljónagryfjunni næsta mánudagskvöld þar sem Njarðvíkurkonur komast áfram í næstu umferð með sigri en Haukar þurfa sigur í næsta leik til að tryggja sér oddaleik að Ásvöllum.
Shayla Fields var með 26 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar í liði Njarðvíkinga. Dita Liepkalne bætti við 13 stigum og 15 fráköstum og Auður Jónsdóttir var með 13 stig og 6 stoðsendingar. Hjá Haukum var Kathleen Snodgrass með 26 stig og 8 fráköst og Íris Sverrisdóttir bætti við 20 stigum og 3 stoðsendingum.
Mynd/ Úr safni: Fields var atkvæðamest í liði Njarðvíkinga í dag.





