Þáttaskil:
Eftir tiltölulega jafnar fyrstu 15 mínúturnar þá sigu Njarðvíkingar framúr og mestu munaði þar um 3 þrista frá Vinson og Loga sem voru funheitir í fyrri hálfleik. Tindastóll náði aldrei að brúa þetta bil.
Tölfræðin lýgur ekki:
Njarðvíkingar nýttu sín skot mun betur í leiknum, hittu úr 58% sinna skota innan þriggja stiga línunnar og 52% utan hennar á meðan sömu tölur voru 47% og 35% hjá Tindastól.
Hetjan:
Logi Gunnarsson átti þennan leik þrátt fyrir að hafa verið rekinn úr húsi undir lokin. Hann var með 100% hittni innan 3ja stiga línunnar og 70% utan hennar og það er magnað að fylgjast með þessari kempu í þessum ham. Eins og vindurinn. Brandon Garrett var eini maðurinn með sóknarlífsmarki í Tindastólsliðinu.
Kjarninn:
Njarðvíkingar komu í þennan leik tilbúnir í að berjast til enda og unnu sanngjarnan sigur. Tindastóll hefur nú tapað 2 leikjum í röð eftir 9 leikja sigurhrinu og ljóst að meiðsli og landsleikja hlé hafa komið illa niður á liðinu.
Myndasafn (Hjalti Árnason)
Mynd: Viðar Ágústsson sækir að körfu Njarðvíkur




