HomeFréttirNjarðvík fór með sigur af hólmi í ótrúlegri skotveislu í Vesturbænum

Njarðvík fór með sigur af hólmi í ótrúlegri skotveislu í Vesturbænum

Mikill stigaleikur fór fram á Meistaravöllum í Bónus deild kvenna í kvöld þar sem Njarðvík tryggði sér 115–97 útisigur gegn KR.

Heimakonur í KR byrjuðu leikinn af krafti og leiddu eftir fyrsta leikhluta, 25–20, en Njarðvík svaraði af hörku í öðrum leikhluta og fór með eins stigs forskot inn í hálfleikinn, 50–49.

Eftir hlé tóku gestirnir af Suðurnesjum öll völd á vellinum, unnu þriðja leikhluta 33–18 og héldu áfram að keyra upp hraðann og auka muninn út leikinn. Njarðvíkingar hittu ótrúlega vel fyrir utan þriggja stiga línuna og settu niður 14 þrista í 25 tilraunum (56%), auk þess að ráða lögum og logum undir körfunni með 48 fráköst gegn aðeins 27 hjá KR. Þá reyndist bekkur Njarðvíkur gríðarlega mikilvægur og skoraði 33 stig gegn sex stigum frá varamönnum KR.  

Brittany Dinkins fór fyrir liði Njarðvíkur og átti stórkostlegan leik með glæsilega tvennu, 30 stig, 11 stoðsendingar og frábæra skotnýtingu. Helena Rafnsdóttir skilaði 21 stigi og Ásta Júlía Grímsdóttir var öflug á báðum endum vallarins með 19 stig og 13 fráköst. Emma Theódórsson bætti við níu fráköstum og fjórum stoðsendingum.  

Hjá KR átti Rebekka Rut Steingrímsdóttir frábæran leik og skoraði 30 stig ásamt því að gefa sjö stoðsendingar. Dazia Lawrence lét sömuleiðis mikið að sér kveða með 26 stig, Aaliyah Pittsova bætti við 14 stigum og Kristrún Ríkey Ólafsdóttir skilaði níu stigum, sjö fráköstum og sex stoðsendingum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -