KR-konur máttu þola 18 stiga tap gegn sterku liði Njarðvíkur á Meistaravöllum í kvöld, 97–115, í háhraðaleik þar sem úrslitin réðust að mestu í þriðja leikhluta þegar gestirnir af Suðurnesjum náðu afgerandi undirtökum með frábærri langskotnýtingu og miklum yfirburðum á teignum.
Rætt var við Daníel Andra Halldórsson, þjálfara KR, eftir leik og má nálgast viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




