spot_img
HomeFréttirNiagra Purple Eagles bundu enda á sigurgöngu Þórönnu og Iona Gaels

Niagra Purple Eagles bundu enda á sigurgöngu Þórönnu og Iona Gaels

Þóranna Kika Hodge Carr og Iona Gaels töpuðu í kvöld fyrir Niagra Purple Eagles í bandaríska háskólaboltanum, 63-81. Leikurinn sá annar sem liðin leika gegn hvoru öðru um helgina. Fyrri leikinn unnu Gaels í gær. Eftir leikinn eru Gaels búnar að vinna fjóra leiki, en tapa fimm það sem af er tímabili. Fyrir leik kvöldsins höfðu þær unnið fjóra leiki í röð.

Þóranna hafði heldur hægt um sig í leik kvöldsins. Skoraði eitt stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Næsti leikur Gaels er föstudaginn 8. janúar gegn Canisius Golden Griffins.

Tölfræði leiks

ESPN spilarinn – Heimili bandaríska háskólaboltans

Fáðu áskrift að ESPN spilaranum í gegnum Körfuna með 30% afslætti með því að skrá þig hér og nota afsláttarkóðann ESPNPLAYERXMAS

  • ESPN er heimili bandaríska háskólakörfuboltans og þar eru sýndir yfir 1000 leikir á tímabili
  • Ef þú býrð til aðgang fyrir 7. Janúar hér og setur inn ESPNPLAYERXMAS í promo code, þá færðu 30% afslátt
  • 12 mánuðir kosta aðeins 7700 kr.
  • Þetta tilboð rennur út 7. Janúar
  • Nýjar áskriftir hafa 7 daga prufutímabil
Fréttir
- Auglýsing -