HomeFréttirNettómótið hafið í Reykjanesbæ

Nettómótið hafið í Reykjanesbæ

 
Þá er stærsta körfuboltamót ársins hafið í Reykjanesbæ en Nettómótið var að rúlla af stað og fyrstu leikirnir hófust nú kl. 08:00 í morgun. Keppni stendur yfir til kl. 15:00 á morgun og verður mikið um að vera, m.a. bíóferðir, frítt í sund, kvöldvaka og marg fleira skemmtilegt sem þessir yngstu iðkendur íþróttarinnar fá að taka sér fyrir hendur. 
190 keppnislið voru skráð til leiks frá 24 félögum og er um 25% þátttökuaukningu að ræða frá síðasta ári.
 
Körfuknattleiksáhugafólk er hvatt til þess að gera sér ferð til Reykjanesbæjar um helgina og líta við á Nettómótið sem nú er haldið í 21. sinn.
 
Fréttir
- Auglýsing -