HomeÚti í heimiEuroleagueNBA og FIBA vilja enn samstarf við EuroLeague – Upphaf NBA Europe...

NBA og FIBA vilja enn samstarf við EuroLeague – Upphaf NBA Europe gæti frestast til 2028

NBA-deildin og Alþjóðakörfuknattleikssambandið (FIBA) sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem áréttað er að áform um stofnun nýrrar atvinnumannadeildar í Evrópu, NBA Europe, séu enn á fullri ferð. Samtökin leggja áfram áherslu á að ná þríhliða samkomulagi við EuroLeague til að sameina evrópska körfuboltasamfélagið, þrátt fyrir að félögin innan EuroLeague hafi nýlega hafnað núverandi tillögu NBA.

Á fundi hluthafa EuroLeague við Como-vatn á Ítalíu höfnuðu félögin skilmálum NBA um sameiginlega keppni. Samkvæmt heimildum BasketNews voru forsvarsmenn félaganna ósáttir við fjárhagslegu forsendurnar, sérstaklega greiðslurnar sem boðnar voru í skiptum fyrir að NBA fengi meirihlutavöld yfir mótinu, auk þess sem óvissa ríkir um langtímaávinning.

Höfnunin þýðir þó ekki að viðræðum sé lokið. Búist er við að EuroLeague leggi fram gagntilboð á næstu vikum.

NBA stefndi upphaflega á að hefja leik í NBA Europe árið 2027 og vinnur sjálfstætt að verkefninu óháð viðræðunum við EuroLeague, meðal annars með því að kynna fyrstu borgirnar sem fá lið á allra næstu vikum. Ef ekki næst samkomulag og NBA neyðist til að byggja upp keppnina frá grunni án innviða og hefðar EuroLeague-liðanna, herma heimildir BasketNews að frumraun deildarinnar gæti frestast fram til ársins 2028.

Fréttir
- Auglýsing -