Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt þar sem Boston Celtics gerðu góða ferð í Staples Center er þeir höfðu nauman heimasigur á LA Clippers 92-99. Þá voru Chicago og Dallas einnig á ferðinni með útisigra í nótt.
LA Clippers 92-99 Boston Celtics
Paul Pierce var stigahæstur hjá Boston með 24 stig og 5 fráköst en Randy Foye gerði 32 stig og gaf 7 stoðsendingar hjá Clippers og Blake Griffin setti 21 stig og tók 11 fráköst.
Önnur úrslit næturinnar:
Detroit 120-116 Utah
Washington 99-105 Dallas
Memphis 120-92 Sacramento
Houston 123-108 New Jersey
Milwaukee 75-83 Chicago
Mynd/ Pierce var stigahæstur hjá Boston í nótt





