Hinn ungi Nataníel Þór hefur ekki stórar áhyggjur í dag. Hvernig sem fer sigrar hans lið. Móðir drengsins, Agata, er pólsk og faðir hans, Leifur Magnússon, Keflvíkingur og alíslenskur. Samkvæmt föður mun hans lið sigra í dag.
Ísland mætir Póllandi í öðrum leik sínum á lokamóti EuroBasket kl. 10:45.