11. umferð Dominos deildar kvenna rúllar af stað í dag með þremur leikjum. Deildin verið nokkuð jöfn í vetur, þar sem að aðeins einum sigurleik munar á Val í efsta sæti deildarinnar og Stjörnunni, Haukum, Keflavík og Skallagrím í 2.-5. sætinu.
Þá er einn leikur í 1. deild kvenna, þar sem að Ármann tekur á móti Þór frá kureyri í Kennaraháskólanum nú í hádeginu.
Hvort liðið sigrar toppslag dagsins í Dominos deild kvenna? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) December 2, 2017
Leikir dagsins:
Dominos deild kvenna:
Valur Haukar – kl. 16:30
Breiðablik Skallagrímur – kl. 16:30
Keflavík Stjarnan – kl. 16:30 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
1. deild kvenna:
Ármann Þór Akureyri – kl. 12:00




