Björn Ingvarsson var mættur í Dalhús í kvöld þegar Íslands- og bikarmeistarar Njarðvíkur heimsóttu Fjölni í Dalhús. Lokatölur leiksins voru 63-74 Njarðvík í vil. Fjölniskonur léku án erlends leikmanns í kvöld en þeir sendu Porshu Porter til síns heima rétt fyrir mót þar sem hún þótti ekki standa undir væntingum.
Fanney Lind Guðmundsdóttir gerði 25 stig og tók 9 fráköst í liði Fjölnis en Lele Hardy, spilandi þjálfari Njarðvíkur, gerði 33 stig, tók 19 fráköst og var með 8 stolna bolta í Njarðvíkurliðinu.
Hér er svo snörp umfjöllun um leikinn:
Fyrsti heimaleikur Fjölnis kvenna var í kvöld á móti Íslandsmeisturum Njarðvíkur. Fyrir leikinn var vitað að Fjölnir myndi spila án erlends leikmans og vissu íslensku stelpurnar að það myndi láta á þær reyna gegn Njarðvík í kvöld.
Leikurinn byrjar vel hjá Njarðvík þar sem Lele Hardy var öflug að vana. Njarðvík komst í gott forskot fljótt en hægt og rólega komu Fjölnisstúlkur til baka, en þar var Fanney Lind sem skaut Fjölni oft inn í leikinn aftur. Það sást á sóknarleik Fjölnis að það vantaði öruggan dripplara til að setja upp kerfi og stýra leiknum betur og er von á erlendum leikmanni á næstu dögum í stað Porter sem var send heim í vikunni. Íslensku stelpurnar stóðu sig mjög vel og dreifðist stigaskor vel milli leikmanna og er ekki annað að sjá en að spennandi körfuboltavetur er framundan hér á Klakanum.
Punktar úr leiknum
* Njarðvík fékk 38 vítaskot í leiknum en Fjölnir 11
* Tapaðir boltar Fjölnis voru 26 á móti 11 hjá Njarðvík