Hamar fagnaði í kvöld deildarmeistaratitlinum í Iceland Express deild kvenna en liðið hefur fjögurra stiga forystu í deildinni þegar ein umferð er eftir. KR gerði þó góða ferð í Blómabæinn og lagði heimakonur 57-63.
Sævar Logi Ólafsson var mættur vopnaður myndavélinni og festi þessa sögulegu stund inn í framtíðina en þetta var fyrsti stórtitill körfuknattleiksdeildar Hamars og í fyrsta sinn sem lið af Suðurlandi vinnur deildarmeistaratitil í efstu deild í körfubolta.
Myndir/ Sævar Logi Ólafsson





