Nýliðar KR byrjuðu leiktíðina af miklum krafti í Bónus deild kvenna með 94–87 sigri á Stjörnunni á Meistaravöllum í kvöld. Leikurinn bauð upp á mikla skemmtun og hátt stigaskor, en Vesturbæingum tókst að halda forystunni á lokasprettinum eftir að hafa skorað 30 stig í lokaleikhlutanum gegn 28 stigum gestanna.
Karfan spjallaði við Söru Rún Hinriksdóttur nýjan leikmann KR eftir leik á Meistaravöllum.




