HomeBónus deildinBónus deild kvennaDýrmætur heimasigur hjá KR gegn Stjörnunni í fyrstu umferð 

Dýrmætur heimasigur hjá KR gegn Stjörnunni í fyrstu umferð 

Nýliðar KR byrjuðu leiktíðina af miklum krafti í Bónus deild kvenna með 94–87 sigri á Stjörnunni á Meistaravöllum í kvöld. Leikurinn bauð upp á mikla skemmtun og hátt stigaskor, en Vesturbæingum tókst að halda forystunni á lokasprettinum eftir að hafa skorað 30 stig í lokaleikhlutanum gegn 28 stigum gestanna.  

Dazia Lawrence fór fyrir liði KR og átti frábæran leik með 27 stig, 8 fráköst og 5 stolna bolta. Sara Rún Hinriksdóttir skilaði glæsilegri tvennu, 25 stigum og 12 fráköstum, Rebekka Rut Steingrímsdóttir bætti við 17 stigum og 6 stoðsendingum og Aaliyah Patty setti 15 stig ásamt 7 fráköstum. KR-ingar sýndu gríðarlega mikla einbeitingu með boltann, töpuðu honum aðeins sjö sinnum allan leikinn og kræktu í heila 15 stolna bolta.  

Í liði Stjörnunnar átti Diljá Ögn Lárusdóttir stórleik og var stigahæst allra á vellinum með 29 stig og 7 fráköst. Agnes María Svansdóttir og Stina Josefine Almqvist lögðu til 19 stig hvor, á meðan Xaviera Alexandria Dyer reif niður 16 fráköst og gaf fimm stoðsendingar af bekknum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -