Í nótt fóru 11 leikir fram í NBA deildinni þar sem Carmelo Anthony var hetja New York Knicks er hann tryggði liðinu sigur með flautukörfu og LA Clippers gerðu góða ferð á austurströndina þegar þeir lögðu Boston Celtics.
Memphis 108-110 New York
Carmelo Anthony var stigahæstur hjá Knicks með 31 stig, 6 stoðsendingar og 5 fráköst. Hjá Memphis voru þrír með 20 stig eða meira en þeirra atkvæðamestur var Tony Allen með 22 stig og 4 stoðsendingar og Zach Randolph bætti við 20 stigum og 11 fráköstum. Melo gerði sigurstig leiksins þegar 0,5 sekúndur voru til leiksloka með stökkskoti við endalínuna vinstra megin.
Boston 103-108 LA Clippers
Mo Williams fann sig vel í liði Clippers í nótt með 28 stig, 4 stoðsendingar og 3 fráköst. Hjá Boston var Ray Allen með 23 stig og 6 fráköst.
Hinn magnaði leikmaður, Kevin Love, hjá Minnesota Timberwolves setti tvennumet í nótt er hann landaði sinni 52. tvennu í röð þegar Minnesota skellti Indiana. Love gerði 21 stig í leiknum og tók 16 fráköst og komst þar með upp fyrir Moses Malone sem gerði 51 tvennu í röð árið 1979. Fleiri tvennur hafa verið gerðar í röð í efstu deild Bandaríkjanna í körfubolta en metið hjá Love gildir fyrir núverandi fyrirkomulag á NBA deildinni eða síðan árið 1976 þegar NBA og ABA deildirnar sameinuðust.
Önnur úrslit næturinnar:
Charlotte 84-101 Chicago
New Jersey 94-90 Golden State
Philadelphia 105-110 Oklahoma
Toronto 94-96 Utah
Milwauke 110-90 Cleveland
Minnesota 101-75 Indiana
New Orleans 93-92 Dallas
San Antonio 111-104 Detroit
Sacramento 102-106 Orlando
Mynd/ Kátur Kevin Love, kappinn á metið í NBA yfir flestar tvennur í röð, eða 52 talsins.





