spot_img
HomeFréttirMeistararnir með sannfærandi sigur í fyrsta leik

Meistararnir með sannfærandi sigur í fyrsta leik

 

Fyrsti leikur úrslitakeppni Dominos deildar karla fór fram í kvöld. Í honum sigruðu meistarar síðustu þriggja ára, KR, lið Þórs frá Akureyri. KR taka því forystuna í einvíginu 1-0, en það lið sem er fyrst að vinna 3 leiki fer í undanúrslit.

 

Heil umferð var einnig leikin í Dominos deild kvenna. Úrslitin þar voru nokkuð eftir bókinni fyrir utan í Borgarnesi þar sem Haukar unnu heimakonur eftir æsilegar lokasekúndur. Þar fyrir utan voru það sigrar hjá Snæfell, Keflavík, Haukar og Valur unnu öll sína leiki. Tvær umferðir nú eftir af deildarkeppni þessa árs, en línurnar í deildinni farnar að skýrast all verulega.

 

Staðan í Dominos deild kvenna

 

 

Úrslit kvöldsins:

 

Domino´s-deild karla:

KR 99-68 Þór Akureyri

Domino´s-deild kvenna:

Valur 83 – 68 Grindavík

Njarðvík 49-73 Keflavík

Snæfell 79-76 Stjarnan

Skallagrímur 72-73 Haukar

Fréttir
- Auglýsing -