Í kvöld fer fram meistarakeppni kvenna en leikið er í Ljónagryfjunni þar sem eigast við Íslands- og bikarmeistarar Njarðvíkur og silfurlið Snæfells úr bikarkeppninni frá síðustu leiktíð.
Á síðustu leiktíð fögnuðu Njarðvíkingar sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í sögu félagsins sem og bikarmeistaratitli. Þá urðu Snæfellskonur Lengjubikarmeistarar kvenna á dögunum. Hér er svo um að ræða lokasprettinn á undirbúningstímabilinu þar sem keppni í Domino´s deild kvenna hefst næstkomandi miðvikudag, 3. október.
Hér er fyrsta umferðin í Domino´s deild kvenna, 3. október
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell




