spot_img
HomeFréttirMeð í kvöld

Með í kvöld

Landsliðskonan Jana Falsdóttir mun samkvæmt heimildum Körfunnar geta leikið með Njarðvík í þriðja leik undanúrslita gegn Grindavík í Smáranum kl. 19:15 í kvöld.

Um er að ræða þriðja leik liðanna, en Njarðvík vann fyrstu tvo leikina og geta því með sigri tryggt sig áfram í úrslitaeinvígið.

Jana þurfti að yfirgefa fyrsta leik liðanna sem Njarðvík vann í Smáranum eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg. Fór hún á sjúkrahús þá í rannsóknir og tók hún ekki frekari þátt í leiknum. Þá missti hún af öðrum leik liðanna í Ljónagryfjunni á dögunum.

Fréttir
- Auglýsing -