spot_img
HomeFréttirMBC lá í fyrsta leik - Hörður með 11 stig

MBC lá í fyrsta leik – Hörður með 11 stig

Þýska úrvalsdeildin hóf göngu sína í gærkvöldi þar sem Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í MBC máttu þola tap í fyrsta leik gegn Telekom Baskets á útivelli.
Lokatölur leiksins voru 83-76 Telekom í vil. Hörður lék í 19 mínútur í leiknum og skoraði á þeim 11 stig. Hann var einnig með 2 stoðsendingar. Stigahæstur hjá MBC var Steve Wachalski með 16 stig.
 
Mynd úr safni/Matthias Kuch

  
Fréttir
- Auglýsing -