Eilítil meiri spenna var í öðrum leikjum A riðils í dag og í kvöld. Fyrr í dag sigrði Slóvenía Grikkland með 78 stigum gegn 72. Atkvæðamestur hjá Slóveníu vr ungstirnið Luka Doncic með 22 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar. Fyrir grikka var það Kostas Sloukas sem dróg vagninn með 18 stigum, 3 fráköstum og 6 stoðsendingum.
Það helsta úr leiknum:
Í seinni leiknum vann Finnland lið Póllands eftir tvíframlengdan leik, 90-87. Þar var það hinn ungi Lauri Markkanen sem neitaði að gefast upp fyrir Finnland. Tryggði þeim báðar framlengingarnar, en í heildina skoraði hann 27 stig, tók 9 fráköst og gaf 2 stoðsendingar. Fyrir Pólland var Mateusz Ponitka atkvæðamestur með 14 stig, 4 fráköst og 4 stoðsendingar.
Frammistaða Markkanen í kvöld:




