spot_img
HomeFréttirMaría og Erna framlengja í Njarðvík

María og Erna framlengja í Njarðvík

María Jónsdóttir og Erna Freydís Traustadóttir hafa framlengt samningum sínum við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur. María Jónsdóttir var valin besti varnarmaður líðsins á síðasta tímabili og þá hlaut Erna Freydís Áslaugarbikarinn á dögunum við lokahóf yngri flokka Njarðvíkur.

María Jónsdóttir er 24 ára gamall miðherji sem skilaði stóru hlutverki til liðsins á síðustu leiktíð. Erna Freydís er 17 ára gamall bakvörður sem vafalítið mun láta vel til sín taka í deildinni á komandi tímabili. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu UMFN.

Mynd/ María Jónsdóttir

Fréttir
- Auglýsing -