HomeFréttirMagnaður liðsheildar sigur hjá Njarðvík

Magnaður liðsheildar sigur hjá Njarðvík

Haukar tóku á móti Njarðvík í 2. umferð Dominosdeildar kvenna í kvöld í Schenkerhöllinni. Bæði lið töpuðu leikjum sínum í fyrstu umferð og því kærkominn sigur framundan hjá öðru hvoru liðinu. Það voru Njarðvíkur stúlkur sem vildu sigurinn meira í kvöld og tóku hann skuldlaust, 83-97.
Eftir að hafa verið lakari aðilinn í fyrri hálfleik varð algjör viðsnúningur hjá Njarðvíkur stúlkum og yfirspiluðu þær Hauka 29-53 í seinni hálfleik. Erna Hákonardóttir fór algjörlega á kostum og skoraði 19 stig, þar af 5 þrista í 9 skottilraunum. Ekki var hún sú eina sem var að hitta vel fyrir utan línuna því Njarðvík settu niður 12 af 22 þriggjastigaskotum sínum í kvöld.
 
Byrjunarlið Hauka: Lovísa Björt Henningsdóttir, Auður Íris Ólafsdóttir, Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Lele Hardy.
 
Byrjunarlið Njarðvíkur: Salbjörg Sævarsdóttir, Andrea Björt Ólafsdóttir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Jasmine Beverly og Erna Hákonardóttir.
 
Haukar léku án Gunnhildar Gunnarsdóttir sem tognaði illa í seinasta leik og varð að sitja hjá í kvöld. Hins vegar var Íris Sverrisdóttir mætt aftur í búning í fyrsta skiptið síðan hún sleit krossbönd í undanúrslitum á þar seinasta tímabili.
 
Fyrsti leikhlutinn byrjaði frekar jafnt en það átti svo sannarlega eftir að breytast. Þegar rétt rúmar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum kom Sylvía Rún Hálfdanardóttir inná og hún átti eftir að valda þvílíkur usla. Haukar kláruðu leikhlutann á 18-6 kafla þar sem að Sylvía skoraði hvorki meira né minna en 11 stig, hirti sóknarfrákast, gaf 2 stoðsendingar og stal boltanum tvisvar. Alveg hreint magnaðar fjórar mínútur hjá henni.
 
Njarðvík komu sterkar tilbaka í öðrum leikhlutanum og neituðu að leyfa Haukum að rúlla yfir sig. Þær söxuðu á forskot Hauka strax í byrjun leikhlutans og héldu þeim vel á tánum. Haukar náðu þó að enda leikhlutann á góðum kafla og leiddu með 10 stigum í hálfleik.
 
Í þriðja leikhlutanum fór Njarðvík hreinlega á kostum í spilamennsku og skoruðu 8 leikmenn stig fyrir liðið. Þar af settu 3 leikmenn niður 5 þrista og í þeim hópi var meðal annars miðherjinn Salbjörg Sævarsdóttir. Njarðvík komust yfir þegar 1 mínúta var eftir af leikhlutanum og litu ekki tilbaka eftir það.
 
Haukar reyndu að klóra í bakkann í fjórða leikhlutanum og tókst að jafna í stöðunni 75-75 en Svava Ósk Stefánsdóttir og Guðlaug Björt Júlíusdóttir bombuðu niður sitt hvorum þristinum og sáu til þess að nær kæmust þær ekki. Lele Hardy reyndi hvað hún gat fyrir Hauka og skilaði ansi hreint mögnuð leik, 33 stig, 16 fráköst, 9 stoðsendingar og 8 stolnir boltar. En það þarf meira en einn sjóðandi leikmann til að sigra í svona leik. Haukar fóru að senda Njarðvík á vítalínuna til að freista þess að bæta stöðuna en það hafði hins vegar þveröfug áhrif þar sem að Haukar nýttu sóknir sínar afar illa í kjölfarið og Njarðvík hélt bara áfram að bæta við.
 
Ekki getur undirritaður valið einn leikmann leiksins og fá Aníta Carter Kristmundsdóttir, Salbjörg Sævarsdóttir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir, Jasmine Beverly og síðust en ekki síðst, Erna Hákonardóttir allar að deila þeim titli.
 
 
/Mynd úr safni – Nigel Moore varð að vernda augun sín frá hitanum í þriggjastiga skotum liðsins í kvöld
Fréttir
- Auglýsing -