Í gær fóru fram tveir leikir í átta liða úrslitunum í WNBA þar sem Minnesota Lynx og Indiana Fever tryggðu sér sæti í undanúrslitunum. Fyrir höfðu Connecticut Sun og Los Angeles Sparks tryggt sér sæti með því að leggja andstæðingana sína í tveimur leikjum. Svo nú er ljóst að Lynx munu taka á móti Sparks á morgun og Sun og Fever munu mætast í Connecticut á föstudaginn. Það lið sem er fyrr að vinna tvo leiki vinnur sinn riðill og heldur áfram í úrslitaleikina.
Lynx 73 – Storm 72
Lynx lagði Storm með minnsta mun í svakalegum leik. Þegar 35 sekúndur voru eftir að leiknum skoraði Sue Bird rándýran þrist fyrir Storm sem kom þeim í stöðuna 73-72. Lynx klikkar í næstu sókn, þar sem að Lindsey Whalen tekur fáránlegt skot og gefur Storm tækifærið á að stela leiknum en skot Lauren Jackson geigaði svo að Lynx er komið áfram og tekur á móti Sparks annað kvöld.
Stigahæstu leikmenn Lynx:?Seimone Augustus 21 stig, Maya Moore 20 stig og Rebekkah Brunson 16 stig.?Stigahæstu leikmenn Storm:?Sue Bird 19 stig (11 stoðsendingar), Camille Little 17 stig og Tanisha Wright 11 stig.
Fever 75 – Dream 64
Framan af var leikurinn í járnum og í hálfleik var jafnt á öllum tölum 39-39. Það var ekki fyrr en í fjórða leikhluta þar sem Fever stakk af en hann unnu þær 21-13. Fever fara svo í heimsókn til Connecticut á föstudaginn þar sem þær mæta Sun í fyrsta leik þeirra í undanúrslitunum.
Stigahæstu leikmenn Fever:?Katie Douglas 24 stig, Erlana Larkins 16 stig (20 fráköst), Tamika Catchings 16 stig (11 fráköst) og Briann January 16 stig.?Stigahæstu leikmenn Dream:?Lindsey Harding 17 stig, Angel McCoughtry 16 stig og Sancho Lyttle 10 stig.
Mynd/ Maya Moore og Seimone Augustus






