spot_img
HomeFréttirLykill: Sigrún Björg Ólafsdóttir

Lykill: Sigrún Björg Ólafsdóttir

Lykilleikmaður U18 ára liðs stúlkna á Norðurlandamótinu 2018 sem fór fram í síðustu viku í Finnlandi var Sigrún Björg Ólafsdóttir. Sigrún skilaði 8 stigum, 3 fráköstum, 3 stoðsendingu og 52% skotnýtingu fyrir aftan þriðja stiga línuna að meðaltali á þeim 22 mínútum sem hún spilaði í leik. Þá leiddi Sigrún liðið í framlagi á mótinu. 

 

Íslenska liðið vann tvo leik á mótinu í ár, gegn Eistlandi og Noregi. Niðurstaðan var því fjórða sætið fyrir Íslenska liðið á Norðurlandamótinu 2018. 

 

Hérna er meira um tölfræði liðsins á mótinu

 
Fréttir
- Auglýsing -