spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaLykill: Dominykas Milka

Lykill: Dominykas Milka

Lykilleikmaður 4. umferðar Dominos deildar karla var leikmaður Keflavíkur Dominykas Milka.

Í nokkuð öruggum sigur Keflavíkur í Njarðvík var Milka besti leikmaður vallarins. Á tæpum 33 mínútum spiluðum skilaði hann 32 stigum, 19 fráköstum og 2 stoðsendingum. Þá var hann einkar skilvirkur í leiknum, með 72% skotnýtingu og 46 framlagsstig. Samkvæmt framlagsstigum var þetta besta einstaklingsframmistaða leikmanns það sem af er vetri. Milka með 46 í kvöld, í öðru er Ty Sabin fyrir gegn Tindastól í annarri umferð með 43 og því þriðja Shawn Glover fyrir Tindastól gegn Njarðvík í þriðju umferð með 40.

Leikmenn umferða:

  1. umferð – Larry Thomas
  2. umferð – Dominykas Milka
  3. umferð – Logi Gunnarsson
  4. umferð – Dominykas Milka
Fréttir
- Auglýsing -