Lovísa Falsdóttir fyrrum leikmaður kvennaliðs Keflavíkur lét langþráðan draum rætast nú fyrir skömmu og hélt til Bandaríkjanna í nám þar sem hún býr núna. Lovísa er nánar tiltekið í Pennsilvaníu ríki í bænum Hershey. "Ég er hérna í Hershey sem er hálftíma keyrsla frá skólanum mínum sem er í Camp Hill og heitir Trinity High School, lítill kaþólskur skóli með mjög gott íþróttaprógram. "
En hvernig stóð á því að Lovísa endaði í Pennsilvania?
"Ég og pabbi erum búin að vera að vinna að þessu í meira en ár en upphaflega ætlaði ég að reyna að komast út fyrir ári síðan en það gekk ekki upp. Ástæðan fyrir að við leituðum í Pennsilvania er útaf því að pabbi fór í menntaskóla sem er í sama bæ seint á síðustu öld og hann bjó hjá frænku okkar þar og nú á ég heima hjá dóttur hennar sem var í sama bekk og pabbi í Camp Hill High School." sagði Lovísa við Karfan.is
"Karfan hérna lofar mjög góðu, mjög öflugt þjálfarateymi og allt á hærra plani en heima er hægt að segja. Æfum bara 2-3 í viku inni í íþróttahúsinu en þess á milli hittum við annan þjálfara sem þjálfar okkur einstaklingslega í snerpu, sprettum og alls konar þolæfingum tvisvar sinnum í viku. Við hættum þeim æfingum viku fyrir tímabilið sem byrjar 15. nóvember."
"Við spiluðum fyrsta æfinga leikinn okkar síðasta mánudaginn á móti liði sem er í deild með stærri skólum. Það var bara æfing fyrir bæði lið til að fara yfir kerfi vetrarins og pressur og svoleiðis en þá fékk ég betri mynd af gæði leikmannana í liðinu og ég er mjög spennt að byrja tímabilið. Ég fékk að byrja þann leik en tel líklegt að ég verði svona 6.-7. maður þegar tímabilið byrjar því það voru nokkrar af stelpunum nýkomnar úr skólaferðalagi og höfðu misst af síðustu æfingum og voru því ekki með allt á hreinu. En það kemur ekkert annað til greina fyrir mig að vera komin í byrjunarliðið fyrir nóvemberlok í alvöru leikjunum!"
Þeir sem vilja fylgjast með Lovísu er bent á blogg síðu hennar.
www.lovisaiusa.blogspot.com





