Logi Gunnarsson og félagar í Angers í Frakklandi hófu leik gegn sterku liði Monakó í kvöld og skemmst frá því að segja sigruðu Angers mikilvægan sigur 80:76. Okkar maður fór fyrir liði Angers og setti niður 26 stig tók 4 fráköst og sendi 3 stoðsendingar. Logi var heitur fyrir utan og setti 8 af 13 þristum niður.
Lið Monaco var talið líklegt til afreka fyrir tímabilið og eitt af þeim liðum sem talið er að muni fara upp um deild. Liðið styrkti sig vel fyrir tímabilið með leikmönnum úr efri deildum og því var þessi sigur Angers nokkuð óvæntur en sem fyrr segir mjög mikilvægur uppá framhaldið.