spot_img
HomeFréttirLindmets mættur í Garðabæinn

Lindmets mættur í Garðabæinn

Stjörnumenn hafa bætt við sig þekktri stærð, nánar tiltekið Renato Lindmets sem lék með liðinu á síðustu leiktíð og fór mikinn með 17,7 stig, 7,7 fráköst og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Lindmets var að spila fyrir lið í Portúgal en sagði þar starfi sínu lausu.
,,Ég tel það vera augljóst af hverju við bætum við okkur, við viljum vera með í bardaganum um titilinn og gerum okkur grein fyrir því að til þess verður að hafa breiðari hóp. Við misstum snemma stóran póst í haust og getum ekki endalaust treyst á 16 ára gutta til að vera inná á lokamínútunum í spennandi leikjum eins og undanfarið,“ sagði Teitur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar við Karfan.is í dag.
 
,,Renato var ekki alveg sáttur með gang mála í Portúgal og fyrir um tveimur dögum síðan þá ákvað hann að segja upp og lét okkur vita í framhaldinu. Fram að því stóð ekkert itl en þegar svona gerist og engin áhætta fylgir í pakkanum var þetta engin spurning. Honum líður vel á Íslandi og okkur líður vel með honum,“ sagði Teitur en Lindmets verður því klár í slaginn með Garðbæingum á fimmtudagskvöld þegar topplið Grindavíkur mætir í Ásgarð í uppgjöri toppliðanna.
 
Eins og flestir vita hefur Jovan Zdravevski verið að glíma við meiðsli allt tímabilið og ekki útséð með framhaldið að svo stöddu.
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -