Grindvíkingar sóttu tvö mikilvæg stig í Laugardalshöllina í kvöld þegar þeir lögðu Ármann að velli, 100–81, í fimmtu umferð Bónus deildar karla. Með sigrinum lyfta Grindvíkingar sér upp að hlið efri liða deildarinnar á meðan Ármanningar sitja enn eftir án sigurs á botninum.
Heimamenn í Ármanni mættu af miklum krafti og byrjuðu leikinn mun betur. Skotnýting þeirra var góð í fyrsta leikhluta þar sem þeir skoruðu 29 stig gegn 20 stigum Grindavíkur og náðu mest tíu stiga forystu snemma leiks.
Í öðrum leikhluta snerist taflið hins vegar algjörlega við. Grindvíkingar hertu vörnina til muna, lokuðu algjörlega á sóknarleik Ármanns og unnu leikhlutann með yfirburðum, 28–11. Gestirnir fóru því með átta stiga forystu inn í hálfleikinn, 48–40, og létu kné fylgja kviði í seinni hálfleik þar sem munurinn jókst jafnt og þétt upp í rúmlega tuttugu stig.
Gríðarlegur munur var á frákastabaráttu liðanna en Grindvíkingar gjörsamlega einokuðu teiginn og unnu fráköstin 55 gegn 32, auk þess sem skotnýting þeirra utan af velli var 50% gegn aðeins 39% hjá heimamönnum. Þá reyndist breiddin hjá Grindavík mun meiri en varamenn liðsins skiluðu 39 stigum gegn 22 stigum frá bekk Ármanns.
Unnsteinn Rúnar Kárason var atkvæðamestur í liði Grindavíkur með 20 stig, Jeremy Pargo fylgdi fast á eftir með 16 stig og Deandre Kane bætti við 15 stigum, 8 fráköstum og 4 stoðsendingum. Mirza Búlic átti sömuleiðis risaleik í teignum og reif niður 14 fráköst.
Hjá Ármanni bar Kinyon Hodges hæst í stigaskorun með 23 stig, en þeir Arnaldur Grímsson og Styrmir Jónasson skoruðu 15 stig hvor. Adam Johanson var einnig drjúgur með 6 stoðsendingar og 5 fráköst fyrir heimamenn.




