Fjórir leikir fóru fram í Bónus deild karla í kvöld og voru það útisigrar á öllum vígstöðvum.
Í stórleik kvöldsins í Forsetahöllinni tryggði KR sér toppsæti deildarinnar með 102–94 sigri á Álftanesi og eru Vesturbæingar eina taplausa liðið eftir fimm umferðir með tíu stig. Keflavík sótti tvö stig í Breiðholtið með 100–90 sigri á ÍR, Grindavík vann öruggan 100–81 útisigur á Ármanns í Laugardalshöll og Tindastóll hafði betur gegn Hetti á Egilsstöðum, 80–73.
Úrslit kvöldsins:
Álftanes – KR 94–102
Ármann – Grindavík 81–100
Höttur – Tindastóll 73–80
ÍR – Keflavík 90–100




