Strákarnir úr leikmannahópnum á EuroBasket í sumar svara nokkrum spurningum um undirbúninginn, upplifunina og hvað tekur við hjá þeim á nýju ári.
Nafn: Haukur Helgi Briem Pálsson
Aldur: 23
Fjöldi landsleikja: 40
Félagslið: Njarðvík
Var undirbúningurinn mjög frábrugðinn því sem við myndum oftar en ekki kalla “minni” verkefni?
Nei svo sem ekki, æfum alltaf frekar vel og undirbúum okkur vel fyrir öll þau verkefni allaveganna sem ég hef tekið þátt í.
Hvernig minnist þú álagsins við undirbúning EM og meðan á því stóð?
Hann var bara fínn mér fannst þeir gera vel við að finna út rétta balancinn með æfingum og hvíld með hjálp einkaþjálfara og svoleiðis. Fannst ég alltaf vera frekar góður á meðan undirbúningum stóð. Þetta var orðið frekar erfitt þarna í restina á EM líka hvernig við spilum tekur mikinn kraft úr manni.
Aðkoma þjóðarinnar, funduð þið fyrir áhuga almennings á verkefninu?
Já miklan. Ætli þjóðin var ekki meira að pæla í Berlín en við. Við höfðum ekki tíma voru ekkert nema æfingar og undirbúningur sem komst að, þannig við hugsuðum bara um að bæta okkur og hafa gaman að þessu njóta.
Hvernig var að vinna úr pressunni sem fylgdi þessu?
Fannst vera lítil pressa þar sem allir eða flestir kannski voru búnir að afskrifa okkur að geta keppt á móti þessum liðum, værum bara að fara leggjast niður á móti þeim. Ég nýtti mér það bara sem að ég gæti farið afslappaður inní þennan undirbúning og mót en samt vitandi að ég væri að fara gera mitt allra besta og vitandi að það væri nóg til að geta keppt á móti þessum liðum.
En að umgangast stórstjörnunar, hvernig var það?
Var gaman svona eftir á, jújú kannski líka á meðan en satt að segja var ég ekkert að kippa mér geðveikt mikið upp ég var nátturulega þarna til að spila á móti þessum strákum og ætlaði mér alltaf að rústa öllum leikmönnunum sem voru að fara dekka mig þannig var minn hugur. En auðvitað var gamað að taka í höndina og spila á móti mönnum eins og Dirk, Pau Gasol, Mirotic, og fleirri.
Fannst þér meira stress fylgja undankepninni, og því að þurfa að tryggja sér sæti á lokamótinu, heldur en sjálfu mótinu?
Í rauninni já. Það var fyrsta skrefið að því að koma Íslandi á stærri pall og þegar það var komið þá eins og ég sagði áður þá voru flestir búnir að afskrifa okkur á mótinu. Var samt að stress að vilja gera vel á Evrópumótinu sjálfu við settum pressu á okkur sjálfir að vera ekki bara með heldur virkilega keppa við þessi lið og við gerðum það mjög vel fannst mér.
Hvernig ert þú að melta/meta verkefnið nú þegar nokkuð er liðið frá Berlín?
Verð alltaf sáttur með frammistöðu okkar en ég held við áttum alveg skilið að taka 2 leiki þarna. Fór því miður ekki þannig en þetta var risasigur fyrir okkur strákana og Ísland.
Breytti þetta verkefni þínum framtíðarplönum í körfunni?
Nei mín stefna hefur alltaf verið að vera atvinnumaður eða halda áfram að spila körfubolta þar sem mér finnst gaman að gera það.
Hvernig var að koma aftur heim og í hið daglega líf?
Var frekar skrítið fyrst maður var að koma sér aðeins á jörðina aftur en maður var fljótt kominn aftur í raunveruleikann. Ávallt gaman að rifja þennan tíma upp samt.
Hvað tekur við núna?
Núna tekur við fyrsta tímabilið mitt í úrvalsdeild á Íslandi með Njarðvik og nám.
Stefnir þú á EuroBasket 2017?
Auðvitað!