spot_img
HomeFréttirLele Hardy verður í hópnum hjá Njarðvík í kvöld

Lele Hardy verður í hópnum hjá Njarðvík í kvöld

Eins og áður hefur komið fram fingurbrotnaði Lele Hardy með Njarðvíkingum í síðasta leik gegn Haukum en Hardy er spilandi þjálfari Njarðvíkurkvenna. Karfan.is náði samtali af Lárusi Inga Magnússyni aðstoðarþjálfara liðsins sem sagði að Hardy yrði í búning í kvöld.
,,Hún verður í hópnum en óvíst hversu mikið hún mun spila. Hún á að hvíla í mánuð samkvæmt læknisráði,” sagði Lárus en Lele er lykilleikmaður í Njarðvíkurliðinu og meistararnir mega illa við að hafa hana í nokkru öðru en toppástandi.
  
Fréttir
- Auglýsing -