Undir 20 ára lið kvenna leikur þessa dagana á Evrópumóti í Oradea í Rúmeníu. Fyrsta leik töpuðu þær fyrir Búlgaríu í gær, en í dag kl. 14:15 leika þær gegn Danmörku. Ásamt þeim eru þær í riðli með Hvíta Rússlandi, Tékklandi og Tyrklandi.
Bæði töpuðu liðin nokkuð stórt í gær. Líkt og tekið var fram, Ísland fyrir Búlgaríu, en Danmörk fyrir liði Tyrklands. Bæði lið því líklega tilbúin að bíta frá sér í dag og komast á beinu brautina í mótinu.
Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu hér að neðan, en annars eru allar upplýsingar um mótið og lifandi tölfræði að finna á heimasíðu keppninnar hér.
Þá munu fréttir af mótinu og viðtöl vera á Körfunni.



