HomeFréttirLeikir dagsins: Víða hart barist í kvöld

Leikir dagsins: Víða hart barist í kvöld

 
Í kvöld hefst 20. umferðin í Iceland Express deild karla þar sem fjórir leikir eru á dagskránni. Nýkrýndir bikarmeistarar KR taka á móti Grindavík í DHL-Höllinni og verða án miðherjans Fannars Ólafssonar sem er brotinn á þumalfingri. Þá verða viðureignir Fjölnis og Tindastóls og svo KR og Grindavíkur í beinni á netinu og um að gera að fylgjast með á heimasíðum KR og Fjölnis þegar líða tekur að leik.
Leikir kvöldsins, allir kl. 19:15 í IEX deild karla:
 
KR-Grindavík
Hamar-ÍR
Fjölnir-Tindastóll
Keflavík-KFÍ
 
KR-Grindavík
Grindavík á ekki kost á því að verða deildarmeistari þetta tímabilið þó Keflavík sé sæti neðar en Grindavík eru liðin jöfn að stigum en Grindavík 6 stigum á eftir Snæfell í toppsætinu og Hólmarar hafa betur innbyrðis gegn gulum. KR á hinn bóginn á enn möguleika á því að verða deildarmeistari sem og Keflavík en KR leikur í kvöld án Fannars Ólafssonar sem er brotinn á þumalfingri en Grindvíkingar mæta með Nick Bradford aftur í DHL-Höllina og þar hefur kappinn kunnað vel við sig í gegnum tíðina. Toppslagur hér á ferðinni og KR sigur færir vesturbæinga í toppsæti deildarinnar um hríð þar sem liðið gæti þá jafnað Snæfell í 32 stig en Grindavíkursigur brúar bilið á milli þeirra og KR niður í 2 stig.
 
Hamar-ÍR
Hvergerðingar ætla sér sigur í kvöld og halda að sama skapi með Tindastól þegar Stólarnir mæta í Grafarvog. Í dag eru Hamarsmenn í fallsæti með 12 stig en sigur í kvöld og tap hjá Fjölni gæti séð Hvergerðina úr storminum um stundarsakir. ÍR-ingar eru hinsvegar fullir sjálfstrausts um þessar mundir eftir að þeir skelltu Stjörnunni í síðustu umferð og sigur í kvöld færi langt með að tryggja liðinu öruggt sæti í úrslitakeppninni. Þá er ekki loku fyrir það skotið að Hamar komist einnig í úrslitakeppnina en þeirra helsta áhyggjuefni um þessar mundir er framtíð þeirra í deildinni.
 
Fjölnir-Tindastóll
Sigur hjá Fjölni setur liðið í jafn mörg stig og Tindastóll og þéttir enn pakkann í baráttunni um sæti í deildinni og úrslitakeppninni. Bæði lið eiga enn möguleika á úrslitakeppninni og eiga enn möguleika á falli. Stólarnir hafa tapað fjórum deildarleikjum í röð á meðan Fjölnir vann mikilvægan sigur í síðustu umferð. Það verður því afar athyglisverður slagur í Grafarvogi í kvöld.
 
Keflavík-KFÍ
KFÍ fær það vandasama verk að heimsækja Keflavík eftir ósigur liðsins í framlengingu gegn erkifjendum sínum í Njarðvík. Enginn öfundsverður af því hlutskipti og Vestfirðingar á botni deildarinnar með 8 stig og búnir að tapa níu útileikjum í röð í deildinni á meðan Keflavík hefur unnið sjö heimaleiki í röð í Toyota-höllinni. Ef Hamar og Fjölnir vinna í kvöld og KFÍ tapar mun KFÍ leika í 1. deild karla næsta tímabil. Eina sem í raun gengur upp fyrir KFÍ er að liðið vinni rest með von um að Fjölnir og Hamar tapi rest.
 
Þá er einn leikur í 1. deild kvenna í kvöld þegar Þór Akureyri tekur á móti Skallagrím kl. 19:30 í Síðuskóla.
 
Fréttir
- Auglýsing -