HomeFréttirLeikir dagsins: Þrír leikir í Iceland Express deild karla í kvöld

Leikir dagsins: Þrír leikir í Iceland Express deild karla í kvöld

 
Í kvöld lýkur 21. umferðinni í Iceland Express deild karla og eru þrír leikir á dagskránni. Línurnar eru farnar að skýrast en gera það þó ekki endanlega fyrr en að síðustu umferð lokinni næsta fimmtudag. Í gær féll Hamar í 1. deild er liðið lá gegn Snæfell í Stykkishólmi sem um leið varð deildarmeistari þar sem KR tapaði gegn ÍR í Hellinum.
Leikir kvöldsins í IEX deild karla, allir kl. 19:15:
 
Grindavík-Fjölnir
Tindastóll-Keflavík
Stjarnan-Haukar
 
Grindavík-Fjölnir
Fjölnismenn eru öruggir áfram með sæti sitt í úrvalsdeild á næstu leiktíð þar sem Hamar féll í gær. Fjölnismenn eru með sjálfstraustið í lagi eftir sigur á Tindastól í síðustu umferð og slíkt hið sama má segja um Grindvíkinga sem höfðu betur gegn KR-ingum í síðustu umferð. Fjölnismenn berjast nú um sæti í úrslitakeppninni en Grindvíkingar eru öruggir þar inni, aðeins spurning um í hvaða sæti þeir enda í deildarkeppninni.
 
Tindastóll-Keflavík
Stólarnir eru það lið sem standa í hvað mesta bylnum um þessar mundir, hafa tapað síðustu fimm deildarleikjum sínum og síðustu tveimur heimaleikjum en fyrr á leiktíðinni hafði Síkið verið nánast óvinnandi vígi. Keflvíkingar eru nú í harðri baráttu um sem efsta mögulega sætið í deildinni og mega ekki við því að misstíga sig í kvöld á sama tíma og Stólarnir hafa vonir um sæti í úrslitakeppninni. Hér má þrítryggja að hörkuslagur fari fram.
 
Stjarnan-Haukar
Haukar hafa tapað síðustu fjórum deildarleikjum sínum en eins og staðan er í dag er liðið í 8. sæti og þ.a.l. inni í úrslitakeppninni. Stjarnan hefur unnið síðustu þrjá heimaleiki sína og voru afar sannfærandi gegn deildarmeisturum Snæfells í síðustu umferð svo Haukar verða að mæta klárir í slaginn ef þeir hafa enn háleitar hugmyndir um þátttöku í úrslitakeppninni.
 
Þá eru tveir leikir í unglingaflokki kvenna einnig á dagskrá í kvöld:
 
20:00 Snæfell-Haukar
20:00 Njarðvík-Keflavík
Fréttir
- Auglýsing -