HomeFréttirLeikir dagsins: Njarðvík og KR geta komist í undanúrslit í kvöld

Leikir dagsins: Njarðvík og KR geta komist í undanúrslit í kvöld

 
Tveir leikir fara fram í kvöld í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna. Njarðvík og KR geta tryggt sér farseðilinn í undanúrslitin með sigrum í kvöld. Njarðvík leiðir einvígið 1-0 gegn Haukum eftir sigur að Ásvöllum og KR leiðir 1-0 gegn Snæfell eftir sigur í fyrstu viðureign liðanna í DHL-Höllinni.
Leikir kvöldsins, báðir kl. 19:15
 
Njarðvík-Haukar
Snæfell-KR
 
Deildarmeistarar Hamars og Keflavík sitja hjá í þessari fyrstu umferð en það er ekki ljóst fyrr en að umferðinni lokinni hvaða liðum toppliðin tvö munu mæta í undanúrslitum.
 
Fjölmennum á völlinn!
 
Fréttir
- Auglýsing -